Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði för strætisvagns við Suðurlandsbraut og handtók mann sem var þar um borð. Sérsveit ríkislögreglustjóra aðstoðaði við handtökuna sem var gerð á fimmta tímanum.
Aðalsteinn Guðmundsson varðstjóri segir að maðurinn hafi verið grunaður um minniháttar þjófnað í verslun.
Hann staðfestir að sérsveitin hafi aðstoðað við handtökuna. Ekki hafi verið sérstök ástæða fyrir aðkomu hennar. Hann bendir á að sérsveitarmenn séu einfaldlega lögreglumenn og komi þar af leiðandi að lögregluaðgerðum ef þeir eru þar skammt frá.