Margt kemur á óvart í niðurstöðum sveitarstjórnarkosninganna, segja stjórnmálafræðinemar sem fylgdust grannt með framvindu mála úr partíi í Fossvoginum í Reykjavík. Erfitt er að segja til um hvernig meirihluti verður myndaður í Reykjavík miðað við nýjustu tölur, segir Ragnheiður María Stefánsdóttir, stjórnmálafræðinemi við Háskóla Íslands.
„Miðflokkurinn er að koma mjög sterkur inn, ég bjóst ekki alveg við svona miklu fylgi,“ segir Unnur Maren Þiðriksdóttir, formaður Politica, félags stjórnmálafræðinema við Háskóla Íslands. Hún segir áhuga ungs fólks á stjórnmálum fara sívaxandi.