Atkvæðagreiðsla vegna aðildarviðræðna að Evrópusambandinu er hafin utan kjörfundar. Við sjáum myndir þaðan og skoðum einnig nýja og stóra endurvinnslustöð á Akureyri þar sem gler er endurnýtt á framandi hátt.
Auk þess förum við í Víðidal þar sem landsliðsmenn kvöddu hesta sína í síðasta skipti fyrir Norðurlandamót og verðum í beinni frá barnum í blíðunni. Veðrið hefur ekki leikið við verta í höfuðborginni í sumar en breyting er að verða þar á og þeir fagna því.
Þetta og fleira á samtengdum rásum Sýnar, Vísis og Bylgjunnar klukkan 18:30.