hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að í dag verði suðvestan kaldi eða stinningskaldi með rigningu eða súld á sunnan- og vestanverðu landinu. Skýjað og úrkomuminna austanlands og hlýjast verði á Austurlandi og Austfjörðum.
Skilin gangi yfir landið í nótt og fyrramálið og á morgun megi búast við suðlægri eða breytilegri átt og skýjuðu veðri með skúrum á víð og dreif. Hiti muni lítið breytast.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á morgun:
Suðvestan 5-13 m/s, en hægari seinnipartinn. Bjart með köflum en víða skúrir er líður á daginn. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast norðaustanlands.
Á mánudag:
Austan og suðaustan 5-13 m/s, en norðan og norðaustan 5-13 vestantil. Rigning, talsverð suðaustanlands, en þurrt fram yfir hádegi á vestanverðu landinu. Hiti 8 til 14 stig.
Á þriðjudag:
Suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Skýjað með köflum og sums staðar dálitlar skúrir. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast norðaustanlands.
Á miðvikudag:
Fremur hæg breytileg átt. Rigning með köflum um landið vestanvert, en annars skýjað og þurrt að kalla. Hiti 10 til 18 stig.