„Ég sé síðan lögreglumenn nálgast mig að aftan og framan og fer bara í panik,“ sagði Mikkael Ingiberg Gunnlaugsson í kvöldfréttum RÚV. Hann hafi sagt þeim að halda sig fjarri og spurt hvað þau vildu honum.
Lögreglan segist hafa fengið tilkynningu um einstakling í ójafnvægi en Mikkael hefur glímt við andleg veikindi. Hann segist hafa verið með kveikjara og brúsa með eldsneyti þennan morguninn fyrir bifhjólið sitt. Hann hafi klætt sig úr buxunum og skvett á sig bensíni.
„Bara til þess að reyna að láta þá bakka frá mér. Ég hélt að það myndi virka en það hafði þveröfug áhrif.“ Lögreglumaður hafi næst skotið sig með rafbyssu. „Ég finn hitann koma upp bakið og svo bara kviknaði í mér,“ sagði Mikkael í samtali við RÚV.
Lögreglan ósammála lýsingu Mikkaels
Lögreglan á Suðurnesjum segir ólíklegt að eldur hafi kviknað út frá rafbyssunni, Mikkael hafi verið ógnandi, ekki farið að fyrirmælum og hótað að kveikja í sér eftir að hann hellti yfir sig bensíni. Eftir notkun rafbyssunnar hafi Mikkael svo borið að sér eld.
„Ég hellti sjálfur yfir mig en ég kveikti ekki í sjálfum mér,“ sagði Mikkael. Hann fékk alvarlega brunaáverka og var fluttur með sjúkraflugi til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans. Þar var honum haldið sofandi í þrjár vikur.
Fram hefur komið að Mikkael hefði þurft barkaþræðingu til að geta andað eftir atvikið. Hann var með lungnabólgu og mikil sýkingarhætta hafi verið vegna brunans. Málið er í rannsókn hjá embætti héraðssaksóknara og nefnd um eftirlit með lögreglu.
Fréttin hefur verið uppfærð.