Stendur ekki til að banna olíuleit
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ríkisstjórnina ekki hyggjast banna olíuleit í íslenskri lögsögu. Stjórnvöld séu ekki fjandsamleg frekari rannsóknum þótt opinber stofnun telji hverfandi líkur á vinnanlegri olíu.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin hyggist ekki leggja fram frumvarp um bann við olíuleit í íslenskri lögsögu. Fjárfestar sem hafi áhuga á frekari rannsóknum geti leitað formlega til stjórnvalda.
Þetta kom fram í svari Kristrúnar við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, á Alþingi í dag. Sigmundur vildi fá skýr svör um hvort stjórnvöld myndu standa í vegi fyrir frekari rannsóknum á olíu og gasi á Drekasvæðinu, norðaustur af Íslandi, og hugsanlegri vinnslu í framhaldinu.
„Það er enginn fjandskapur í garð þessa máls frá stjórnvöldum,“ sagði Kristrún og bætti síðar við að áhugasamir aðilar þyrftu að bera sig eftir björginni gagnvart stjórnvöldum. „Það er bara í góðu lagi mín vegna.“
Vill að stjórnvöld taki vel á móti fjárfestum
Sigmundur Davíð hefur lagt fram þingsályktunartillögu um olíu- og gasvinnslu og segir mikla fjárhagslega hagsmuni geta falist í því að nýta mögulegar auðlindir á Drekasvæðinu.
Hann gagnrýndi viðbrögð stjórnvalda við endurvakinni …