Stefnir í lúxushita

Kona að njótaMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur
Lægð sem verið hefur sunnan við landið fjarlægist í dag og dregur því úr vindi á sunnanverðu landinu. Norðanlands verður vindur einnig hægur að mestu, samkvæmt Veðurstofu Íslands.
Lítilsháttar væta verður á Austfjörðum og Suðausturlandi en annars má búast við björtu og sólríku veðri víða. Dagshiti verður almennt á bilinu 12 til 18 stig, en svalara verður við austurströndina.
Á morgun og fimmtudag er spáð hæglátu, þurru og mildu veðri. Síðdegis á fimmtudag þykknar þó upp vestanlands og mögulega verður súld.
Í framhaldinu gætu djúpar lægðir nálgast landið með suðlægum vindum og rigningu, einkum sunnan- og vestanlands. Áfram er þó gert ráð fyrir mildu veðri.