Stefán Einar Stefánsson blaðamaður á Morgunblaðinu og þáttastjórnandi á Mbl.is segir frá því í nokkuð kostulegri frásögn að honum hafi borist í gærkvöldi símtal frá samtökunum Já til að sjá. Það kemur eflaust mörgum spánskt fyrir sjónir enda Stefán Einar með þekktari nei-sinnum landsins og hefur marg sinnis opinberlega fundið Evrópusambandinu allt til foráttu og aldrei farið í grafgötur með þá skoðun sína að hafna beri framhaldi aðildarviðræðna Íslands og sambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst.
Stefán Einar greinir frá afar óvæntu símtali - „Af hverju lendi ég bara á svona ógeðslega leiðinlegu fólki?“