Staðan í borginni hafði meiri áhrif en afskipti Kristrúnar
Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi segir þunga stöðu flokksins í Reykjavík hafa þyngt baráttuna. Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins tekur undir en áréttar það sé ekki hægt að þakka ráðherra Samfylkingarinnar velgengni flokksins í Kópavogi.
„Það var keyrt þungt á stöðunni í borginni,“ segir Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi en flokkurinn náði að tvöfalda fjölda sveitarstjórnarfulltrúa sinna í sveitarfélaginu, úr einum í tvo. Það breytti því ekki að Sjálfstæðisflokkurinn náði stórsigri og hreinum meirihluta.
Afskipti Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingarinnar og forsætisráðherra, af sveitarstjórnarmálum í Kópavogi var umdeild og vissulega óhefðbundin miðað við síðustu forsætisráðherra sem liggja oftast lágt í slíkum baráttum.
Þriðji maður á lista Sjálfstæðisflokksins, Andri Steinn Hilmarsson, segir áhrif hennar ofmæld í umræðunni, stórsigur Sjálfstæðisflokksins megi ekki rekja að svo miklu leyti til meints afleiks forsætisráðherrans, heldur hafi staða fallins meirihluta í borginni vegið þyngra í umræðunni.
Pirraði andstæðinga
„Við erum sátt í Kópavogi, við tvöfölduðum fylgi okkar,“ segir Jónas Már og bendir á að Samfylkingin í Kópavogi hafi þrátt fyrir allt fengið öflugustu kosninguna af öllum framboðum Samfylkingarinnar á höfuðborgarsvæðinu. Flokkurinn fékk rétt tæp nítján prósent á meðan borgarstjórnarflokkurinn fékk …