Spjallað í Reykja­vík á meðan drónarnir dynja á Kænu­garði - Vísir

Spjallað í Reykja­vík á meðan drónarnir dynja á Kænu­garði - Vísir

Spjallað í Reykja­vík á meðan drónarnir dynja á Kænu­garði - Vísir

Oleksiy Gavrysh, sendiherra Úkraínu gagnvart Noregi og Íslandi, tók við starfinu í apríl 2025 en þar áður var hann ráðgjafi í varnarmálaráðuneyti Úkraínu. Fyrir það hafði hann um árabil starfað í fjármála- og orkugeira Úkraínu. Hann er frá Dónetsk-héraði og heimabær hans er, nærri víglínunni, á því svæði sem Rússar krefjast að Úkraínumenn hörfi frá.

Undirritaður settist á dögunum niður með sendiherranum á hóteli í miðbænum og ræddi við hann um starfið á Íslandi og stöðuna í Úkraínu, svo eitthvað sé nefnt. Á sama tíma gerðu Rússar þeirra umfangsmestu drónaárás á Úkraínu hingað til.

Þegar undirritaður spurði Oleksiy að því hvernig það væri að starfa sem sendiherra þjóðar í stríði sagðist hann líta á starfið sem svo að það snerist fyrsta og fremst um að þjóna þjóð sinni og notaði hann orð Gandálfs úr Hringadróttinssögu til að undirstrika hvernig hann liti á starfið á þessum erfiðu tímum.

„Það er lína úr Hringadróttinssögu, þar sem Gandálfur útskýrir fyrir Fróða að maður fær ekki að velja þann tíma sem maður lifir á. Það eina sem maður getur valið er hvernig maður ver þeim tíma sem maður fær.“

„Diplómasía á stríðstímum er mjög mikilvæg. Hún getur hjálpað þar sem vopnin geta það ekki,“ sagði Oleksiy. „Að vera sendiherra á stríðstímum þýðir að þjóna landi þínu og þjóð, allan daginn, alla daga.“

Aðspurður um hvernig samskiptin við stjórnvöld á Íslandi hefðu verið var svarið stutt.

„Frábær.“

Hann sé ánægður með að vera sendiherra á Íslandi og í Noregi.

„Ég er á meðal vina.“

Oleksiy sagði mikilvægt fyrir hann sem sendiherra að finna sameiginlega hagsmuni milli þjóðarinnar sem hann þjónar og landanna sem hann starfar í, að finna leiðir fyrir báða til að hagnast. Þar hjálpi honum mjög að bakgrunnur hans sé ekki í utanríkisþjónustu heldur komi hann úr viðskiptalífinu.

„Fyrir mér er það mjög mikilvægt að finna sameiginlega hagsmuni, því ég er ekki atvinnudiplómati. Ég er viðskiptamaður.“

Oleksiy Gavrysh, sendiherra Úkraínu gagnvart Noregi og Íslandi.Vísir/Vilhelm

Oleksiy sagði starf sitt ekki snúast um að betla eftir aðstoð handa Úkraínu heldur vinna þannig að báðir aðilar hagnist.

„Úkraína hefur miklu að deila með Íslandi,“ sagði Oleksiy. Hann sagðist einnig vera mjög þakklátur Íslendingum fyrir þann stuðning sem þeir hefðu sýnt Úkraínumönnum, yfir því hvernig tekið hefði verið á móti úkraínsku fólki hér á landi og vegna sameiginlegra verkefna ríkjanna.

Hvernig geta smá ríki eins og Ísland best stutt við bakið á Úkraínumönnum?

„Með því að halda áfram að gera það sem þið eruð að gera.“

Oleksiy sagðist vilja ítreka að samskiptin við Íslendinga væru mjög góð á öllum stigum.

„Ég er mjög þakklátur. Meira að segja veðrið er frábært.“
Oleksiy Gavrysh, sendiherra Úkraínu gagnvart Noregi og ÍslandiVísir/Vilhelm

Oleksiy var hér á landi til að sækja fundi og þá tók hann hann einnig til máls á fundi á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, sendinefndar Evrópusambandsins á Íslandi og Úkraínuverkefnis Háskóla Íslands. Þar ræddi hann reynslu Úkraínu af milliríkjasamskiptum á stríðstímum.

Meðal annars talaði hann um það hvernig diplómasía verði mikilvægari og beinskeyttari og talaði um „harða diplómasíu“, sem snýst í einföldu máli um það að kalla hlutina sínum réttu nöfnum.

„Hörð diplómasía er diplómasía sannleikans. Það er oft ekki svo auðvelt að segja sannleikann og kalla hlutina sínum réttu nöfnum. Hluti eins og innrás, harðstjórn og stríð. Þetta eru ekki átök eða sértæk hernaðaraðgerð.“

Umfangsmesta árásin á Kænugarð

Á meðan við sátum og töluðum saman í miðbæ Reykjavíkur stóð yfir umfangsmesta dróna- og eldflaugaárás sem Rússar hafa gert í Úkraínu hingað til. Á rétt rúmum sólarhring notuðu Rússar að minnsta kosti 1.560 sjálfsprengidróna auk eldflauga til árásanna á um 180 staðsetningar í Úkraínu, samkvæmt Vólódímír Selenskí, forseta.

Árásin beindist að miklu leyti að Kænugarði.

Að minnsta kosti fimmtíu árásir beindust að íbúðarhúsum og að minnsta kosti 24 eru látnir eftir að fjölbýlishús hrundi í Kængugarði. Tugir særðust í þeirri árás í Kænugarði.

Átökin í Mið-Austurlöndum, stríð Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran og árásir Írana á nágrannaríki sín með sjálfsprengidrónum og eldflaugum hafa samkvæmt Oleksiy staðfest að stríðsrekstur hefur tekið miklum breytingum. Stríð séu nú orðin eins og stríðið í Úkraínu, þar sem Úkraínumenn hafa um árabil varist ódýrum sjálfsprengidrónum, sem voru upprunalega þróaðir af Írönum, og margskonar eldflaugum.

Stríðið gegn Íran hafi sýnt að reynsla Úkraínumanna sé verðmæt.

Úkraínumenn hafa á undanförnum mánuðum sent ráðgjafa til ríkja í Mið-Austurlöndum þar sem þeir hafa aðstoðað við loftvarnir og skrifað undir samninga um sameiginlega hergagnaframleiðslu, eins og á loftvarnarkerfum og drónum.

Sjá einnig: Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna

Írönsku drónarnir eru tiltölulega ódýrir í framleiðslu en flugskeyti í vestræn loftvarnarkerfi sem hafa ítrekað verið notuð til að skjóta þá niður eru mun dýrari og þar að auki tekur mun meiri tíma að framleiða þau. Meðal annars hafa ríki Mið-Austurlanda verið að nota Patriot-loftvarnarkerfi til að skjóta niður drónana en þau eru hönnuð til að granda skotflaugum, stýriflaugum og herþotum.

Skotflaugar eru, í einföldu máli sagt, eldflaugar sem fljúga langt til himins og falla síðan til jarðar á gífurlega miklum hraða. Þess vegna er mjög erfitt að skjóta þær niður og er það ekki hægt nema með Patriot-kerfum eða öðrum eins og THAAD.

Flugskeyti í Patriot-kerfin hafa verið af skornum skammti þar sem framleiðsla þeirra er kostnaðarsöm og tímafrek. Sum þeirra kosta um fjórar milljónir dala í framleiðslu og framleiðsla þeirra er langt frá því að anna eftirspurn.

Mörg ríki Evrópu hafa þegar sent eigin flugskeyti og Patriot-kerfi til Úkraínu, en það eru einu varnir Úkraínumanna gegn rússneskum skotflaugum en Rússar eru taldir framleiða um áttatíu slíkar flaugar í mánuði.

Oleskiy bendir á að Selenskí hafi nýlega tilkynnt að Úkraína og nokkur önnur ríki hefðu stofnað samstarfsvettvang um rannsóknir og þróunarvinnu varðandi það að granda skotflaugum á skilvirkari hátt.

„Ég vona að við getum fundið tæknilega lausn til að auka skilvirkni. Við getum án efa gert það saman,“ sagði sendiherrann.

Verðmæt en dýrkeypt reynsla

Úkraínskir hermenn tóku nýverið þátt í NATO-æfingu á Gotlandi í Svíþjóð. Þátttaka þeirra fólst í því að spila sem Rússar og nota dróna af ýmsum gerðum gegn sænskum hermönnum og öðrum sem tóku þátt.

Úkraínumennirnir stóðu sig svo vel að Svíarnir stöðvuðu æfinguna þrisvar sinnum til að hugsa sinn gang og reyna að breyta aðferðum sínum.

Æfingunni hefur verið tekið sem alvarlegri viðvörun til herja NATO um að taka upp notkun sjálfsprengidróna og þróa leiðir til að verjast þeim. Þar hafa Úkraínumenn gífurlega reynslu en ríki í Evrópu og annarsstaðar í heiminum hafa leitað til þeirra til ráða, bæði hvað varðar drónahernað og framleiðslu sjálfsprengidróna.

Olekseyi segir þessa reynslu Úkraínumanna hafa kostað sitt.

„Við höfum öðlast gífurlega reynslu en hún hefur verið mjög dýrkeypt.“

Olekseyi sagðist þá ekki vera að tala um peninga, þó peningar væru mjög mikilvægir í stríði.

Hann sagði Úkraínumenn ekki eingöngu verja sjálfa sig gegn Rússum, heldur væru þeir einnig að verja evrópsk gildi og frelsi Evrópu. Ef Úkraína tapaði stríðinu gegn Rússum myndi það koma verulega niður á öryggi Evrópu til langs tíma og kosta heimsálfuna mjög mikið.

Ekki bara í peningum heldur einnig í mannslífum.

„Þess vegna skiptir styrkur Úkraínumanna og hugrekki úkraínskra hermanna miklu máli, ekki bara fyrir öryggi Úkraínu, heldur öryggi Evrópu.“

Auk þess að nota dróna með miklum árangri hafa Úkraínumenn einnig tekið upp umfangsmikla notkun vélmenna og fjarstýrðra farartækja á jörðu niðri. Oleksiy segir að slík vélmenni hafi verið notuð í rúmlega tíu þúsund mismunandi tilfellum.

Þau eru meðal annars notuð til að koma birgðum og skotfærum til hermanna á víglínunni og til að flytja særða hermenn af henni en það getur reynst verulega hættulegt vegna hættunnar á því að hermennirnir sjáist og ráðist sé á þá með drónum og stórskotaliði.

„Bara á síðastliðnum mánuði hafa vélmenni verið notuð til að flytja 247 særða hermenn af víglínunni.“

Það að flytja særða og látna hermenn af víglínunni er mjög hættulegt, vegna þeirra fjölmörgu dróna sem eru á flugi yfir henni á hverri stundu. Eftirlitsdrónar eru notaðir til að fylgjast með hreyfingum og auðvelda flugmönnum sjálfsprengidróna að gera árásir.

Særðir menn hafa þurft að þola miklar þjáningar á víglínunni þar sem ómögulegt hefur verið að flytja þá á brott vegna árása. Það að nota róbota hefur þó reynst Úkraínumönnum vel.

Blaðamaður Wall Street Journal kynnti sér þessa róbóta vel á dögunum og birti miðillinn myndband um þá.

Vélmenni hafa einnig verið notuð til árása en Úkraínumenn lýstu því yfir fyrr á árinu að þeim hefði tekist að taka varðstöð Rússa með því að nota eingöngu dróna og vélmenni.

Fleiri árásir í Rússlandi

Úkraínumenn hafa einnig aukið umfang árása sinna í Rússlandi umtalsvert á undanförnum vikum og mánuðum. Þessar árásir hafa að miklu leyti beinst að olíuframleiðsluinnviðum í Rússlandi og hergagnaframleiðslu.

Oleksiy bendir á að í einu tilfelli hafi árás verið gerð í Úralfjöllum, í um 1.700 kílómetra fjarlægð frá Úkraínu. Í þeirri árás segjast Úkraínumenn hafa grandað tveimur rússneskum herþotum.

Oleksiy Gavrysh og Silja Bára Ómarsdóttir, rektor.Vísir/Vilhelm

Þá segir Oleksiy að Úkraínumönnum hafi tekist að valda skemmdum á olíuinnviðum í þúsund kílómetra fjarlægð. Þetta hefði kostað Rússa verulegar tekjur af sölu olíu.

Selenskí hefur talað um þessar árásir sem skilvirkustu viðskiptaþvinganirnar gegn Rússlandi.

Sjá einnig: Hafa þurft að draga veru­lega úr olíuframleiðslu vegna á­rása

Um síðustu helgi sendu Úkraínumenn rúmlega 1.300 sjálfsprengidróna til Moskvu, þar sem árásir gegn ýmiskonar skotmörkum heppnuðust. Selenskí sagði í yfirlýsingu að þetta væri mikilvægt með tilliti til þess að Rússar eru hvergi með öflugri loftvarnir en í Moskvu.

Það að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hafi beðið sérstaklega um vopnahlé á meðan að Rússar héldu sigurdaginn, svokallaða, hátíðlegan og fögnuðu endalokum seinni heimsstyrjaldarinnar, segir Oleksiy að hafi verið eftirtektarvert og segi mikið um virkni árásanna.

Á meðan á þessu vopnahléi stóð gerðu Rússar fjölda árása á Úkraínu og Úkraínumenn.

„Fyrir Rússland eru engar reglur eða samkomulög,“ segir Oleksiy.

„Þetta er algerlega óreiðukennd harðstjórn sem vanvirðir reglur, lög og samkomulög.“

Heimabærinn á víglínunni í Dónetsk

Friðarviðræður milli Úkraínumanna og Rússa hafa setið á ís um nokkuð skeið núna en Bandaríkjamenn hafa reynt að hafa milligöngu þar á milli. Þeir eru uppteknir í Íran en nýverið bárust fregnir af því að ráðamenn í bæði Rússlandi og Úkraínu telji litlar líkur á því að hægt sé að endurlífga þær viðræður. Pútín er sagður staðráðinn í að leggja undir sig meira landsvæði í Úkraínu og þá sérstaklega Donbas-svæðið svokallaða.

Æðstu herforingjar Rússlands eru sagðir hafa sannfært Pútín um að þeir geti náð stjórn á öllu Donbas (Lúhansk og Dónetsk) fyrir næsta haust. Í kjölfarið vill Pútín taka meira landsvæði í Úkraínu og hækka verðmiðann fyrir mögulegt vopnahlé.

Embættismenn í Kænugarði telja aftur á móti að þeir séu ekki jafn viðkvæmir gagnvart þrýstingi frá Bandaríkjunum og áður um að gera slæman friðarsamning við Rússa. Þeir líta sérstaklega til þess að Rússum vegni lítið sem ekkert á víglínunni og að dróna- og eldflaugaárásir Úkraínumanna valdi sífellt meiri usla bakvið víglínuna og djúpt í Rússlandi.

Auk þess að segja að segja að frekari viðræður séu tilgangslausar, fyrr en Úkraínumenn hörfi alfarið frá Donbas. Svæðið sem Úkraínumenn stjórna enn í Donbas þykir mjög víggirt og það vilja þeir ekki gefa eftir. Bæði vegna þess að þar býr fólk og vegna þess að slíkt myndi veita Rússum stökkpall lengra inn í Úkraínu.

Oleksiy er frá austurhluta Úkraínu, nánar tiltekið frá borginni Kramatorsk, sem er í Donbas-héraði. Hún er nærri víglínunni og á því svæði sem Rússar vilja að Úkraínumenn hörfi frá. Þar á hann ættmenni.

Þrátt fyrir ummæli um að fundarhöld séu ekki í boði hafa Rússar þó sagt að Pútín gæti hitt Selenskí í Moskvu. Rússar hafa margsinnis reynt að ráða Selenskí af dögum.

„Þeir vilja ekki halda fund, því þeir hafa ekkert til að tala um,“ sagði Oleksiy.

„Þeir eru ekki tilbúnir til viðræðna og það er miður, því við erum mjög skýrir um að við viljum stöðva þetta stríð.“

Sendiherrann sagði einnig mikilvægt að ekki væri hægt að tala um Úkraínu án Úkraínumanna. Þeir þyrftu að hafa eitthvað um viðræður að segja.

Selenskí ræddi í gær við Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands, Emmanuel Macron forseta Frakklands og Friedrich Merz kanslara Þýskalands. Þeir ræddu það hvernig koma ætti friðarviðræðum við Rússa aftur af stað og með meiri aðkomu Evrópu.

Selenskí sagði að staða Úkraínumanna væri betri en hún hefði verið, bæði hvað varðar stöðuna á víglínunni og langdrægar árásir Úkraínumanna í Rússlandi. Það skipti máli þegar kæmi að því að auka þrýstinginn á Rússa.

#drónarnir #dynja #meðan #reykjavík #spjallað


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262884195d/spjallad-i-reykjavik-a-medan-dronarnir-dynja-a-kaenugardi

📰 Aðrar fréttir

„Kannski eru þau að niðurlægja okkur öll og grafa undan sjálfri menningunni“
📅 07.10.2026 👁️ 0
„Kannski eru þau að niðurlægja okkur öll og grafa undan sjálfri menningunni“
Ekki myndu allir sætta sig við 10 þúsund krónur í laun fyrir einn og hálfan vinnudag. Þetta þurfa þó þeir pistlahöfundar sem taka þátt í Uppástandi á ...
Samþykktu einróma að slíta kjarasamningum á morgun
📅 07.10.2026 👁️ 0
Samþykktu einróma að slíta kjarasamningum á morgun
Stjórn VR samþykkti einróma í kvöld að slíta kjarasamningum á morgun. Frá þessu greinir Vísir.Halla Gunnarsdóttir formaður VR segist ekki skynja vilja...
Segir orð sín um „heimskulegt“ frumvarp hafa verið tekin úr samhengi
📅 07.10.2026 👁️ 0
Segir orð sín um „heimskulegt“ frumvarp hafa verið tekin úr samhengi
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir ummæli sín um frumvarp stjórnvalda um leiguvernd hafa verið tekin úr samhengi að einhverju leyti.Ásgeir sagði í ...
Former Venezuelan President Nicolás Maduro expected to face more charges this week
📅 07.10.2026 👁️ 0
Former Venezuelan President Nicolás Maduro expected to face more charges this week
The new charges are expected to accuse Maduro and his wife of playing a role in the torture of Americans in Venezuelan prisons, US media reports.
Byggðaráð vill ekki breyta Valaskjálf í bæjarskrifstofur
📅 07.10.2026 👁️ 0
Byggðaráð vill ekki breyta Valaskjálf í bæjarskrifstofur
Byggðarráð í Múlaþingi hefur mælt gegn því að sveitarfélagið kaupi Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum undir bæjarskrifstofur. Íbúar hafa undanfarið lýst ó...
Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
„Ég var með fund í stjórn VR þar sem var einróma samþykkt að slíta kjarasamningum á morgun,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR í samtali við Vísi....
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
Samkvæmt svörum frá Reykjavíkurborg er unnið að gerð deiliskipulags á grundvelli hönnunarforsendna fyrir nýjan leikskóla. Ekki liggi þó enn fyrir enda...
Drap Christian Zedig með einu hnefahöggi – dæmdur í aðeins eins árs fangelsi
📅 07.10.2026 👁️ 1
Drap Christian Zedig með einu hnefahöggi – dæmdur í aðeins eins árs fangelsi
Nkumba Ludovic Tshiembe, 31 árs, hefur verið dæmdur í eins árs fangelsi fyrir árásina á sænska lögreglumanninn og tveggja barna föðurinn Christian Zed...
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
📅 07.10.2026 👁️ 0
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
Ummæli Donald Trump Bandaríkjaforseta um árásir Írans á tvær borgir í Kaliforníu hafa vakið hörð viðbrögð og þá sérstaklega hjá pólitískum andstæðingu...
Christa Pike 'angry and confused' after failed execution, lawyers say
📅 07.10.2026 👁️ 1
Christa Pike 'angry and confused' after failed execution, lawyers say
Lawyers say the convicted killer was surprised to have survived and remained "shackled" to her hospital bed.
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
„Þá mátt ekki sýna forsetaembættinu vanvirðingu,“ sagði Trump við blaðamenn í Hvíta húsinu í dag. Forsetinn var spurður út í ummæli hans um að ef Demó...
Gervigreind mun bæði útrýma og skapa milljónir starfa
📅 07.10.2026 👁️ 1
Gervigreind mun bæði útrýma og skapa milljónir starfa
Erik Brynjolfsson er einn kunnasti hagfræðingur Bandaríkjanna þegar kemur að mati á efnahags- og félagslegum áhrifum gervigreindar á vinnumarkað. Hann...
Fangelsi undir Vatna­jökli - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Fangelsi undir Vatna­jökli - Vísir
Nýi leikvangurinn var gefinn út í gær, þriðjudag, samhliða uppfærslu á leiknum þar sem nýtt efni var kynnt til leiks. Overwatch er fjölspilunarleikur ...
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
„Það eru auðvitað vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk,“ segir Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landstjórnarinnar, í samta...
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
📅 07.10.2026 👁️ 2
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
Þróun gervigreindarlíkana fleygir fram á ógnarhraða. Árið 2023 töldu tæplega 3.000 sérfræðingar að það gæti tekið allt að 27 ár fyrir gervigreind að l...
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
📅 07.10.2026 👁️ 2
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
Maður sem ákærður hefur verið fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn lögum um loftferðir um borð í flugi Icelandair á leið frá Baltimore í Bandaríkjunum...
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
Meðal annars hafa borist ábendingar um að slökkt sé á ljósastaurum á Sæbraut og í Breiðholti. Frá Vegagerðinni, sem heldur utan um ljósastaura við sto...
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
📅 07.10.2026 👁️ 2
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli við JL-húsið við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu. Unnið er a...
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi
📅 07.10.2026 👁️ 1
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi í JL-húsinu við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu...
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
📅 07.10.2026 👁️ 2
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
Bilun er í ljósastaurum víða um borgina. Vegagerðin segir að tilkynnt hafi verið um bilanir á Sæbraut og Miklubraut og að unnið sé að viðgerðum. Vegag...
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
📅 07.10.2026 👁️ 2
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
Memorial events have taken place in Israel on the third anniversary of the Hamas-led attack that sparked the devastating Gaza war.
Engin brottfararstöð í desember
📅 07.10.2026 👁️ 2
Engin brottfararstöð í desember
Ljóst er að opnun brottfararstöðvar fyrir útlendinga í Reykjanesbæ tefst um að minnsta kosti nokkra mánuði. Hana átti að opna eftir minna en tvo mánuð...
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
Sigríður Margrét er fimmtíu ára gömul og sækir tískuinnblásturinn meðal annars til kvenna í kringum sig. Sömuleiðis er hún dugleg að lesa tískutímarit...
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
„Við söfnuðum yfir 100 undirskriftum og fundum hentugt húsnæði í Reykjavík til að opna kjörstað fyrir komandi kosningar í Serbíu, eins og kosningalög ...
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
📅 07.10.2026 👁️ 2
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, er harðlega gagnrýndur fyrir að segja að Hamas njóti stuðnings á Vesturlöndum þar...
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
📅 07.10.2026 👁️ 2
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
Í dag eru þrjú ár síðan Hamas-samtökin gerðu mannskæðustu hryðjuverkaárás á Ísrael í sögu landsins. Íbúar Gaza vöknuðu við árásir snemma morguns sem m...
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
📅 07.10.2026 👁️ 2
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
Kennarasamband Íslands kynnti í dag tillögur að stefnumótun til framtíðar í menntamálum, Blásum byr í seglin, og þau verkefni sem ráðast þarf í til að...
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
📅 07.10.2026 👁️ 2
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
Kötturinn Dreki fer ránshendi um Vesturbæinn í Reykjavík, tekur ýmislegt ófrjálsri hendi - en sinnir líka hreinsunarstörfum.„Hann er þjófóttur kisi. H...
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
Könnunarfarið Curiosity, sem er statt á yfirborði Mars, fangaði í ágúst sólarupprás á rauðu plánetunni svokölluðu. Það var þegar farið var notað til a...
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
Högni Alvar Harðarson Önnuson er formaður Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, en hann útskýrir í samtali við Vísi að félagið bjóði um þessar...
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
📅 07.10.2026 👁️ 2
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
Craig Morris was sentenced to three years and nine months in prison at Northampton Crown Court.
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
Í auglýsingu í Lögbirtingablaði dagsins segir að félagið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta þann 3. júní síðastliðinn og skiptum lokið þann 23. sep...
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
📅 07.10.2026 👁️ 2
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
Eigandi lóðar í frístundabyggð í Grímsnes- og Grafningshreppi hafði ekki erindi sem erfiði þegar hann kærði breytingu á deiliskipulag fyrir byggðina s...
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
📅 07.10.2026 👁️ 2
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
Maricarmen Abascal, 87, was forcibly removed on a stretcher from her apartment of more than 70 years in September.
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
📅 07.10.2026 👁️ 2
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
Fyrstu umræðu um áðurnefnd húsaleigulög ríkisstjórnarinnar, sem oft eru kölluð leigubremsa, var fram haldið á Alþingi í dag en stjórnarandstaðan vildi...
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
📅 07.10.2026 👁️ 2
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.
Man charged with 13 attempted murders including British child
📅 07.10.2026 👁️ 2
Man charged with 13 attempted murders including British child
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.
„Við erum að gefa boltann upp“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
„Við erum að gefa boltann upp“ - Vísir
Magnús Þór var framsögumaður á blaðamannafundi Kennarasambandsins sem fór fram í Réttarholtsskóla í dag. Þar kynnti hann stefnumótun og áherslur samba...
Greipur skemmtir í Sykursalnum
📅 07.10.2026 👁️ 2
Greipur skemmtir í Sykursalnum
Grínistinn Greipur Hjaltason verður með uppistand í Sykursalnum, Grósku, á fimmtudagskvöld og hefst sýningin kl. 21. Yfirskrift uppistandsins er „Grei...
Þétta sam­starfið í út­norðri - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 3
Þétta sam­starfið í út­norðri - Vísir
Þetta kom fram á blaðamannafundi Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, Jens Frederik Nielsen, formanns grænlensku landsstjórnarinnar, og Beini Joh...
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Kom á óvart að Miðflokkurinn studdi ekki brottfararstöðina
📅 07.10.2026 👁️ 2
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Kom á óvart að Miðflokkurinn studdi ekki brottfararstöðina
Með því að koma ekki upp brottfararstöð fyrir brottvísaða útlendingar hafa Íslendingar í raun ekki staðið við Schengen skuldbindingu í um áratug. Í lj...
Nýsköpunar- og frumkvöðlasetrið Arctell Sandvik opnað
📅 07.10.2026 👁️ 2
Nýsköpunar- og frumkvöðlasetrið Arctell Sandvik opnað
Nýsköpunar- og þekkingarsetrið Arctell Sandvik var formlega opnað í dag. Setrinu er ætlað að vera vettvangur fyrir nýsköpun og frumkvöðlastarf, og er ...
Sólveig greindist með brjóstakrabbamein: „Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast“
📅 07.10.2026 👁️ 3
Sólveig greindist með brjóstakrabbamein: „Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast“
Sólveig Jónsdóttir greindist með brjóstakrabbamein í maí 2026 eftir að hafa fundið fyrirferð í brjóstinu fyrr á árinu. Hún segist hafa upplifað alls k...
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Bókun 35 – Höfum við efni á meiri óvissu og veikari samkeppnisstöðu?
📅 07.10.2026 👁️ 3
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Bókun 35 – Höfum við efni á meiri óvissu og veikari samkeppnisstöðu?
Ísland þarf meiri erlenda fjárfestingu, fleiri alþjóðleg fyrirtæki og fleiri vel launuð þekkingarstörf. Við þurfum að lækka fjármagnskostnað og styrkj...
Pútín skerðir frelsi ungra karlmanna – Talið vera undanfari herkvaðningar
📅 07.10.2026 👁️ 3
Pútín skerðir frelsi ungra karlmanna – Talið vera undanfari herkvaðningar
Rússar óttast aðra stóra herkvaðningu í landinu eftir að Vladímír Pútín forseti skerti frelsi ungra manna fyrir skemmstu. Ungir menn mega nú meðal ann...
Orðið skýrt hvenær ökumenn undir áhrifum lyfseðilsskyldra lyfja mega stjórna ökutæki
📅 07.10.2026 👁️ 3
Orðið skýrt hvenær ökumenn undir áhrifum lyfseðilsskyldra lyfja mega stjórna ökutæki
Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis vegna neyslu lyfja tók gildi í dag.Neysla lyfja ökumanna verður að vera í samræmi við fyrirmæli læknis o...
Telur uppsögn kjarasamninga geta leitt til langrar deilu
📅 07.10.2026 👁️ 3
Telur uppsögn kjarasamninga geta leitt til langrar deilu
Halla Gunnarsdóttir óttast að kjarasamningum verði sagt upp á morgun. Ekkert samtal sé í gangi við Samtök atvinnulífsins. Lögð hafi verið fram lausn f...
Conservatives united behind Kemi Badenoch - but party still needs to win over voters
📅 07.10.2026 👁️ 3
Conservatives united behind Kemi Badenoch - but party still needs to win over voters
Kemi Badenoch has the support of her party but the Tories still trail Labour and Reform in opinion polls.