Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir lítur á þjóðaratkvæðagreiðsluna á laugardag sem tækifæri sem ekki komi aftur, a.m.k. ekki fyrir þá sem komnir eru á efri ár. Tilhugsunin um að nei-ið verði ofan á vekur henni sorg. Kolbrún segir í pistli á Facebook-síðu sinni: „Í morgun leitaði á mig sorgleg tilhugsun:Ef niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar á morgun verður nei, er mjög líklegt að fólk á mínum aldri og eldra fái aldrei annað tækifæri til að sjá hvernig samningur Íslands við ESB gæti raunverulega litið út.
Sorgleg tilhugsun leitar á Kolbrúnu: „Tækifærin eru ekki endalaus“