Sorgin breytti sýn Andreu á lífið

Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri FKA, Félags kvenna í atvinnulífinu, hefur komið víða við á sínum ferli og prófað ýmislegt. Hún hefur meðal annars starfað sem framkvæmdastjóri, forstöðumaður, mannauðsstjóri, verkefnastjóri og ráðgjafi og safnað að sér mikilli reynslu úr ólíkum áttum atvinnulífsins. Í vor var hún jafnframt tilnefnd til Stjórnendaverðlauna Stjórnvísi.
Andrea settist á dögunum niður í ítarlegt viðtal þar sem hún opnar sig um ýmislegt, bæði úr starfi og einkalífi. Þar fer hún yfir rúmlega tveggja áratuga feril sinn, áskoranirnar sem hafa orðið á vegi hennar og reynsluna af því að leiða fólk, byggja upp vinnustaðamenningu og takast á við breytingar.
En það er ekki bara stjórnandinn Andrea sem fær að njóta sín í viðtalinu. Hún ræðir einnig um lífið utan vinnunnar, móðurhlutverkið, náttúruna og ýmislegt annað sem hefur mótað hana í gegnum tíðina.
Ferill Andreu hefur verið fjölbreyttur og spannar meðal annars atvinnulíf, fjölmiðla og félagasamtök. Í viðtalinu gefur hún lesendum tækifæri til að kynnast manneskjunni á bak við starfsheitið og segir frá ýmsu sem sjaldnar ratar upp á yfirborðið.
Föðurmissir
Þegar kemur að erfiðleikum sem hafa mótað Andreu segir hún að nokkur atriði komi upp í huga sinn en hafa þurfi í huga að hún er heppin kona hér á Íslandi. „Ég hef vatn, fjölskyldu, vini og hér er ekki stríð. Ég hef öll vitin til að sækja í og er almennt heilsuhraust. Það eru alltaf einhverjar áskoranir hjá öllum en það sem kemur upp í huga mér núna er missir, að missa pabba minn um jólin. Það eina sem er öruggt í þessu lífi er svo dauðinn en mikið ógurlega er erfitt að missa foreldri. Pabbi minn lést, var með krabbamein og það voru mikil átök fyrir hann að fella grímuna, játa sig sigraðan og tapa svo baráttunni. Hann var stórglæsilegur maður, ávallt mikill ævintýramaður og virkur náttúruunnandi og að sjá hann missa kraftinn til að lifa lífinu lifandi, hætta að geta spilað á gítarinn og séð um sig sjálfur mun hafa áhrif á mig út lífið. Það varð til þess að ég hef nú í eitt ár hugað betur að heilsunni í von um að vera sjálfbjarga út lífið og efla mig nú og leggja inn í von um að halda styrk til að gera þá hluti sem mér finnst sjálfsagt að gera í dag. Það á svo allt eftir að koma í ljós en þetta hefur verið hvati til þess að rífa mig upp og fara loksins í leikfimi nokkra morgna í viku. Það er betra að vera elstur í ræktinni en yngstur á hjúkrunarheimili eins og ein góð kona sagði. Svo held ég áfram að ganga á fjöll eins mikið og ég get, tek stigana í vinnunni og held mér virkri. Svo líður mér að sjálfsögðu betur og kem alltaf glaðari út í daginn eftir leikfimi. „Þér verður að líka vel við þig,“ sagði Vigdís Finnbogadóttir einu sinni og það er mikið til í því. Þú verður svo glöð með þig þegar þú gerir sem þú segist ætla að gera eins og að mæta í ræktina.“
Súrefnið ekki ofmetið stöff
Andrea talar um að það sé svo margt erfitt á meðan á erfiðleikum í lífinu stendur.
„Mér finnst ég almennt hafa og hef haft kjark til að taka erfiðar ákvarðanir og ég er umburðarlyndari gagnvart sjálfri mér með árunum. Þetta hefur einfaldað lífið og gert það betra og fækkað erfiðleikum. Þrjósk bjartsýni einkennir mig sem gerir glasið almennt hálffullt en svona almennt þá hef ég minni þolinmæði fyrir leiðindum og er almennt sáttari en ekki síður sterkari og styrkur snýst ekki um að vera alltaf sterk. Styrkur snýst stundum um að viðurkenna takmarkanir sínar, leita sér stuðnings og byrja aftur.“
Þegar álag og streita gera vart við sig fer Andrea gjarnan á sumrin út í garð og reitir arfa í blómabeði og fær mold undir neglurnar eða þá að hún fer í göngutúr. „Þar hef ég oft fundið bestu lausnirnar við erfiðum verkefnum og þar fæ ég gjarnan nýjar hugmyndir. Í náttúrunni hleð ég batteríin og svo finnst mér sund og vatnið heilandi. Í náttúrunni hef ég alltaf fundið ró, jafnvægi og ákveðna jarðtengingu. Valin einvera hentar mér mjög vel og þá sérstaklega undir miklu álagi. Súrefnið er ekki ofmetið stöff og að anda djúpt gerir mikið en í stressi öndum við grunnt og við förum á sjálfstýringu og þannig á mis við margt, enda álag og streita í of stórum skömmtum snarhættulegt ástand. Ef ég er pirruð þá eru miklar líkur á að ég er svöng og ætti að vinda mér í að borða. Að hækka í tónlist gerir mér ávallt gott, enda tónlist mikið meðal. Svo er það náttúran sem gerir allt betra þegar eitthvað er erfitt og stífla í kerfinu og svefn er eitthvað sem hefur alltaf góð áhrif og gagnast öllum. Þá elska ég að fara á myndlistasýningar og söfn, enda hef ég safnað samtímalist í þrjátíu og fimm ár. Það var ógeðslega gaman með öllum miðaldra og gömlu körlunum á myndlistauppboðum hér á síðustu öld.“