Haraldur Noregskonungur lést í morgun, 89 ára að aldri. Hann var konungur í rúm 35 ár og þótti framsækinn, mildur og alþýðlegur. Mikill mannfjöldi safnaðist saman við konungshöllina í Osló og samkvæmt norska ríkisútvarpinu voru um þrettán þúsund þar undir kvöld þegar kista konungs kom í höllina. Margir hafa minnst hans sem konungs fólksins.
Í spilaranum hér að ofan má sjá umfjöllun um andlát Haraldar Noregskonungs í kvöldfréttum sjónvarpsins.