Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnti útkalli vegna elds í íbúð við Vallarbraut í Hafnarfirði. Mikinn svartan reyk lagði úr glugga íbúðarinnar þegar slökkvilið kom á staðinn á sjöunda tímanum, að sögn Sigurjóns Hendrikssonar varðstjóra.
Reykkafarar fóru strax inn í íbúðina, sem var mannlaus. Vel gekk að slökkva eldinn.
Fréttin var uppfærð.