„Ég er staddur í Eymundsson og til mín kemur maður sem ég þekkti frá fornu fari sem sagði mér að faðir hans hefði tengst þessum hópi. [...] Og að hann hefði stundum, þegar hann hafi verið í glasi, sagt sér frá því að hann hefði verið í hópi manna sem að hefðu farið að Stúdentagörðunum og brennt þar kross af því að á Stúdentagörðunum var staddur svartur maður,“ segir rithöfundurinn Sigurjón Birgir Sigurðsson, eða Sjón eins og hann er kallaður. Hann vísar þarna til þess hvernig hann heyrði fyrst um söguna af veru Suður-Afríkumannsins Johannesar Manong á Íslandi 1964 og 1965.
Sjón fékk ábendingu um sögu Manongs eftir að hann gaf út skáldsöguna Korngult hár, grá augu árið 2019, kannaði hana sjálfur og kom sögunni svo á framfæri við fjölmiðla. Í bókinni fjallar Sjón um nýnasistasellu sem var starfandi í Reykjavík á sjötta og sjöunda áratugnum. Hluti meðlima þessarar nýnasistasellu virðist hafa áreitt Johannes Manong þegar hann kom til Íslands í árslok 1964 með það fyrir augum að leggja stund á tannlækningar í háskólanum.
Í Þetta helst í gær var sagt frá sögu Johannesar Manong á Íslandi að hluta. Bréf með hakakrossi var sent til Manongs og haldin var krossbrenna fyrir utan Stúdentagarðana sem var í fjölmiðlum sögð minna á aðferðir Ku Klux Klan í Bandaríkjunum. Á endanum hraktist Manong frá Íslandi, samkvæmt því sem hann sagði sjálfur.
Rætt er við Sjón um Manong og skáldsögu hans í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér:
Tækifæri þegar svartur maður flutti inn á Garð
Sjón segir að það sem hann hafi verið að reyna að gera í bókinni sé að sýna fram á hvernig nýnasisminn hverfi aldrei. „Þessir þræðir hafa legið víða og það er náttúrulega það sem ég er að gera í bókinni minni er að sýna hvernig nýnasisminn og nasískar hugmyndir hverfa aldrei. Þær finna sér nýja leið og liggja bara alltaf tilbúnar. Það þarf ekki nema einhvern einn sem hafði verið í sellunni í kringum þann sem ég kalla Gunnar Kampen til þess að hafa haldið áfram, áfram að tala um þetta og í framhaldi drífa þeir sig í því að veitast að þessum manni á Garði. Af því þetta var auðvitað ekki bara þessi kross sem var brenndur heldur voru þetta sendingar með hakakrossi og annað,“ segir Sjón þegar hann ræðir um skáldsöguna sína og sögu Manongs.
Eftir að Sjón kynnti sér sögu Johannesar Manongs á Íslandi í gegnum timarit.is kom hann henni á framfæri við fjölmiðla.
Fyrri þáttinn um sögu Johannesar Manong má hlusta á hér: