Sex manns létust í eldsvoða sem kviknaði á byggingarsvæði í miðborg Brussel í gærmorgun.
Eldurinn kom upp í Oxy-turninum sem er enn í byggingu. Hann stendur skammt frá Grand Place-torginu í miðborg Brussel. Gert er ráð fyrir að í húsinu verði íbúðir, hótel, veitingastaðir og barir þegar framkvæmdum lýkur.
Tvær lyftur voru fastar
Slökkvilið var kallað á vettvang um klukkan átta í gærmorgun að staðartíma. Fljótlega tókst að ráða niðurlögum eldsins en við leit kom í ljós að reykur og eldur höfðu borist í lyftustokka þar sem tvær lyftur voru fastar.
Björgunaraðgerðir stóðu yfir í nokkrar klukkustundir. Þegar slökkviliðsmenn opnuðu aðra lyftuna fundust þar sex látnir.
Philippe Close, borgarstjóri Brussel, var viðstaddur frá morgni. Filippus Belgíukonungur og Bart de Wever forsætisráðherra mættu líka á vettvang.
Tveir voru fluttir á sjúkrahús með alvarleg brunasár. Upptök eldsins liggja ekki fyrir og rannsókn stendur yfir.
Samkvæmt RTBF, belgíska ríkismiðlinum fyrir frönskumælandi íbúa, gætu fleiri fórnarlömb enn verið í byggingunni. Þrjár lyftur eru í byggingunni og viðbragðsaðilar hafa enn ekki leitað í einni þeirra. Sú lyfta hefur verið notuð undir vöruflutninga.