Frá því að Vaðlaheiðargöng voru tekin í notkun árið 2018 hefur einungis verið sjálfvirk rukkun fyrir að keyra í gegnum göngin. Myndavél tekur mynd af númeraplötu og annaðhvort er reikningur sendur í heimabanka fólks eða fólk er með bílinn í áskrift. Veggjald punktur is hefur annast gjaldtökuna. Þetta fyrirkomulag hefur ekki verið gallalaust en meðal annars hefur gengið erfiðlega að rukka erlenda ferðamenn sem eru á eigin bílum hér á landi og sömuleiðis verið töluverð vinna fyrir bílaleigur að rukka ferðamenn eftir á.
Valgeir Bergmann, fyrrverandi framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga, segir að töluverð þörf hafi verið á nýju fyrirkomulagi. Undanfarið hafi gengið enn verr að rukka erlenda gesti ganganna. Að einhverju leyti skýrist það af því að sífellt var verið að hafna greiðslukortum þeirra þegar þeir reyndu að greiða í gegnum veggjald punktur is. Margir erlendir ferðamenn eru með fyrirframgreitt símkort á ferðum sínum um landið og hafa því ekki aðgang að rafrænni auðkenningu þegar greitt er á netinu.
Lausnin á því vandamáli var að setja upp posa Akureyrarmegin við munna ganganna. Þar geta nú erlendir ferðamenn - og aðrir gestir - stöðvað bílinn, stimplað inn bílnúmer og greitt fyrir ferðina. Stök ferð kostar 2.216 krónur fyrir hefðbundna bíla. Undanfarið hefur umferð um Víkurskarð aukist á ný, en hún dróst saman eftir opnun ganganna.