Önnur af stærstu lyfsölukeðjum landsins gerði samkomulag um kaupin við Einar Braga Haraldsson, lyfjafræðing, sem stofnaði Borgarapótek árið 2013. Hann er sagður eini eigandi þess í sameiginlegri tilkynningu Lyfju og Einars Braga.Kaupin eru sögð eiga að styðja við uppbyggingu Lyfju. Þau breikki jafnframt vöruúrval í apótekinu í Borgartúni. Viðskiptavinir þess fái aðgang að sölu- og dreifikerfi Lyfju, þar á meðal netverslun og smáforriti fyrirtækisins.
Borgarapótek var önnur tveggja lyfjaverslana sem höfnuðu því að taka þátt í verðlagseftirliti Alþýðusambands Íslands fyrir ári.Lyfja keypti vörumerkið Jurtaapótekið af Kolbrúnu Björnsdóttur, grasalækni, í febrúar. Verslun Jurtaapóteksins á Laugarvegi var lokað í kjölfarið.