Seinni umræða um um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu er á dagskrá Alþingis á morgun. Þingfundurinn hefst klukkan 15 og þetta er eini dagskrárliður hans utan óundirbúins fyrirspurnartíma.
Málið er þingsályktunartillaga sem þýðir að það fer í gegnum tvær umræður í þinginu en ekki þrjár eins og lagafrumvörp. Að seinni umræðu lokinni gengur málið til atkvæðagreiðslu.
Eftir fyrri umræðu fór þingsályktunartillagan til utanríkismálanefndar þaðan sem það var afgreitt í gær. Meirihluti nefndarinnar lagði til að spurningunni yrði breytt þannig að spurningin yrði: „Á að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“
Minnihluti utanríkismálanefndar mótmælti afgreiðslu úr nefnd
Minnihluti utanríkismálanefndar bókaði mótmæli gegn því að málið væri tekið út úr nefnd. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks og einn nefndarmanna, sagði við fréttastofu að afgreiðslan væri ótímabær. Vísaði hún til þess að enn hefðu verið útistandandi upplýsingabeiðnir.
„Það var ekki hægt að koma neinu viti fyrir meirihluta nefndarinnar sem vísaði til þess að það hefði verið lögð fram tímalína. Þegar við hófum þessa vinnu í mars var lagt fram tímaplan, sem ég taldi að væri til viðmiðunar. Og tímaplanið er auðvitað að þau eru í spreng að klára þetta mál og afgreiða út úr þingsal fyrir 29. maí svo það sé hægt að drífa í þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst,“ sagði Diljá Mist.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Miðflokksins sem situr í nefndinni, sagði aðspurður við fréttastofu í gær að ekki gæfist tími fyrir málþóf. „En við munum þurfa að ræða þetta mjög ítarlega, ég efast ekkert um það,“ sagði hann.