Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, segir sátt ríkja um símabann í grunnskólum og nýtt einkunnakerfi þótt orðræða forystu Kennarasambandsins bendi til annars. Inga undirritaði reglugerð um símabann í grunnskólum í gær.
„Það ríkir mun meiri sátt, til dæmis hjá foreldrum og jafnvel hjá börnunum sjálfum, heldur en maður hefði kannski þorað að vona. Staðreyndin er sú að það er meira svona urgur kannski hjá ákveðnum hópum innan kennarasamfélagsins, forystunnar og annað slíkt, en í heildina séð þá eru það hagsmunir barnanna sem fyrst og síðast eru settir hér á oddinn,“ segir Inga Sæland.
Nýtt einkunnakerfi verður tekið í notkun á þessu skólaári og tölustafir teknir upp að nýju í stað bókstafa. Kennarar segja nýtt kerfi of flókið en Inga segir að ráðuneytið sé boðið og búið til að aðstoða við innleiðingu.
Talsverður styr hefur staðið um störf Ingu í mennta- og barnamálaráðuneytinu en Inga segist þvert á móti finna fyrir miklum stuðningi.
„Svona gegnumgangandi er kennarasamfélagið mjög mikið að styðja við mig og hvetja mig til dáða og þau eru ofboðslega ánægð með þær áherslubreytingar sem eru að verða inni í ráðuneytinu,“ segir Inga.
Það að formaður stjórnmálaflokks sé í fyrsta sinn ráðherra menntamála sýni áhersluna sem ríkisstjórnin leggi á þennan mikilvægasta málaflokk.
„Það eru börnin okkar og framtíðin. Ég hef ekki áhyggjur af því þó að það sé einhver smá háreysti hjá einhverjum aðilum innan forystu Kennarasambandsins því það er frekar þar sem við erum að heyra óánægjuraddirnar,“ segir Inga.
„En samt sem áður finnst mér nú formaður Kennarasambandsins vera meira með okkur í liði og vilja virkilega stíga inn í til þess að gera með okkur góða hluti og ég er þakklát fyrir það.“
Hægt er að horfa á viðtalið við Ingu í heild í spilaranum að neðan.