Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir mannréttindi enn í hávegum höfð í borginni þrátt fyrir að mannréttindaskrifstofa og mannréttindaráð hafi verið lögð niður í síðustu viku.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar gagnrýndu í gær breytingar á ráðum borgarinnar á fundi borgarráðs og sökuðu nýjan meirihluta um blekkingar og sýndarhagræðingu.
Fulltrúar Samfylkingarinnar segja kostnað við stofnun öldungarráðs vera þann sama og við mannréttindaráð, en sinna færri verkefnum.
Bókunin var svohljóðandi:
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar furða sig á tillögu meirihluta borgarráðs um stofnun nýs ráðs, öldunga- og notendaráðs fatlaðs fólks í stað mannréttindaráðs sem fór með þau verkefni sem nýju ráði er ætlað að sinna. Kostnaður við nýtt ráð er nákvæmlega sá sami og kostnaður var við mannréttindaráð, sem sinnti auk verkefna á sviði öldrunar- og fötlunarmála, málefnum fólks af erlendum uppruna, jafnréttismálum og ofbeldisvörnum. Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar telja að allur þessi leiðangur með tilheyrandi upphrópunum og niðurlagningu mannréttindaráðs og -skrifstofu hafi einungis verið til þess fallinn að slá ryki í augu borgarbúa og láta líta út fyrir að verið væri að hagræða.
Athugasemdir Samfylkingarinnar „furðulegar“
Borgarstjóri gefur lítið fyrir gagnrýni Samfylkingarinnar. Ráð og nefndir séu ekki þyngsti kostnaðarliðurinn í starfsemi borgarinnar, heldur sé það stjórnkerfið sjálft. Meirihlutinn vinni nú að því að minnka yfirbygginguna, meðal annars með aðgerðum síðustu viku.
„Þetta eru nú bara furðulegar athugasemdir, við erum auðvitað að leggja niður Mannréttindaskrifstofu og í því felst meginhagræðið.“
Önnur verkefni, svo sem málefni fólks af erlendum uppruna, jafnréttismál og ofbeldisvarnir, hafi verið flutt annað, meðal annars velferðarskrifstofu, skóla- og frístundasvið, skrifstofu borgarstjórnar og einhver undir hatt borgarráðs.
„Þetta var allt útlistað með mjög ítarlegum hætti í tillögunni sem lögð var fyrir borgarráð í síðustu viku,“ segir Hildur.
Mannréttindi ekki best varin inni á skrifstofum
Spurð hvort ákvörðunin um að leggja mannréttindaskrifstofu niður sé til merkis um að borgarstjórn láti sig ekki varða þau málefni sem þar voru undir segir Hildur mannréttindi áfram verða í hávegum höfð í Reykjavík. Mannréttindum sé aftur á móti ekki endilega best borgið inni á skrifstofu.
Þau eru varin af stjórnarskránni okkar og þau eiga bara að vera gegnumgangandi þema í allri starfsemi okkar. Við þurfum ekki sérstaka mannréttindaskrifstofu eða mannréttindaráð að störfum til að verja mannréttindi og við höfum fært einmitt verkefnin mun frekar nær þjónustuþegunum, inn á gólfið nær íbúunum sem þurfa á þjónustunni að halda. Ég held að mannréttindi séu ekki best varin inni á einhverjum skrifstofum.