Seðlabankinn hækkar vexti
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka meginvexti bankans um 0,25 prósentustig og verða þeir því 7,75 prósent. Allir nefndarmenn studdu hækkunina. Bankinn segir verðbólguhorfur hafa versnað og útilokar ekki frekari vaxtahækkanir.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentustig. Meginvextir bankans, svokallaðir stýrivextir, verða því 7,75 prósent.
Allir nefndarmenn studdu ákvörðunina.
Í yfirlýsingu nefndarinnar segir að verðbólga hafi verið yfir fimm prósentum það sem af er ári og mælist nú 5,2 prósent. Verðbólguvæntingar hafi jafnframt hækkað, einkum til skamms tíma.
Nefndin bendir á að hækkun verðbólguvæntinga frá því að stríðsátök hófust í Mið-Austurlöndum sé þó ekki jafn mikil og í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu fyrir fjórum árum. Þar vegi þungt að spennan í þjóðarbúinu hafi þá verið töluvert meiri.
Samkvæmt nýrri spá Seðlabankans eru horfur á minni hagvexti og meira atvinnuleysi en bankinn spáði í febrúar. Á sama tíma hafa verðbólguhorfur versnað vegna mikillar hækkunar olíu- og hrávöruverðs og viðvarandi innlends verðbólguþrýstings.
Í yfirlýsingunni segir að efnahagsaðstæður gætu þróast til verri vegar ef truflanir á alþjóðlegum olíumarkaði vara lengur en nú er gert ráð fyrir eða ef kjarasamningum verður sagt upp síðar á árinu.
Peningastefnunefnd telur rétt að hækka vexti í ljósi verri verðbólguhorfa og hárra verðbólguvæntinga. Nefndin segist jafnframt tilbúin að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar til að tryggja að verðbólga hjaðni að markmiði, þótt það gæti hægt enn frekar á efnahagsumsvifum.
Mótun peningastefnunnar muni sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.