Kristrún segir fulltrúum hafa fjölgað um helming og þeir séu alls 38. Það sé næstmesta fjölgun fulltrúa flokksins frá stofnun hans.
„Hvert einasta atkvæði er mikils virði og við erum þakklát fyrir atkvæði greidd Samfylkingu og frambjóðendum okkar um land allt,“ segir Kristrún í færslu sem hún birti á Facebook fyrir stuttu.
Hún segir árangur flokksins ekki síst ánægjulegan á landsbyggðinni og að Samfylkingin hafi fest sig í sessi á ný sem jafnaðarflokkur um land allt.
„Um leið er ljóst að heilt yfir settum við í Samfylkingu markið hærra enda höfum við mikinn metnað fyrir jafnaðarfólk í landinu. Svo virðist sem víða hafi fólk með jafnaðartaug ekki greitt okkar flokki atkvæði sitt í þetta sinn. Það tökum við alvarlega. Kjósendur hafa alltaf rétt fyrir sér,“ segir Kristrún og að það sé á hennar ábyrgð að leiða og efla Samfylkinguna.
Munu leita leiða til að standa betur undir væntingum
„Og við munum nú í sameiningu – með fjölda nýrra fulltrúa – vinna úr umboði okkar, hlusta eftir vilja fólksins og leita leiða til að standa betur undir væntingum í næstu sveitarstjórnarkosningum. Í hverju sveitarfélagi fyrir sig og á landsvísu.“
Hún segir ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn verði í forystu í fjölda sveitarfélaga, þar á meðal Reykjavík.
„Ég óska þeim góðs gengis og við munum leggja okkur fram við að eiga áfram gott samstarf á milli ríkis og sveitarfélaga. En Samfylkingin mun alltaf veita kröftuga andstöðu við harða hægripólitík sem kemur niður á vinnandi fólki og veikir það sem við eigum hérna saman á Íslandi. Það er skylda okkar sem jafnaðarfólks og þar gefum við ekkert eftir,“ segir hún.
Uppbygging hefjist hjá nýrri forystu í dag
Kristrún segir nauðsynlegt fyrir Samfylkinguna að byggja aftur upp traust í Reykjavík.
„Þó að flokkurinn hafi haldið sínum fimm fulltrúum í borgarstjórn þá er þetta ljóst. Við tökum það til okkar. Þessi uppbygging hefst hjá nýrri forystu okkar í borginni strax í dag, enda tekur tíma að vinna traust og það getum við aðeins gert með verkum okkar.“
Hún segir mikla endurnýjun hafa orðið í flokknum og nefnir, sem dæmi, að átján af 19 oddvitum þeirra vítt og breitt um land séu nýir.
Leiða breytingar
Ríkisstjórnin segir hún heldur svo áfram að hrista upp í kerfinu og leiða breytingar.
„Þetta gerum við áfram af fullum krafti – í þágu þjóðar og með gildi jafnaðarmennsku að leiðarljósi. Lögum ríkisfjármálin, bætum samgöngur, höggvum á hnúta í orkumálum, eflum heilbrigðiskerfið, byggjum verknámsskóla, innleiðum réttlát auðlindagjöld, fjölgum íbúðum, tryggjum trausta stjórn á útlendingamálum, hlúum að eldra fólki og öryrkjum – svo nokkur dæmi séu nefnd,“ segir Kristrún og að hún sé á leið til fundar í Noregi.