Borgarráð samþykkti í gær tillögu Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra um að framlengja megi samning um rekstur Parísarhjóls á Miðbakka. Þetta verður þriðja sumarið í röð sem parísarhjólið mun rísa við höfnina.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands sem mynda fráfarandi meirihluta í borgarstjórn sátu hjá við afgreiðsluna.
Tillaga borgarstjóra gengur út á að teymi stefnumótunar og þróunar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara fái heimild til að bjóða Taylors Tivoli Iceland til viðræðna um að framlengja samning um tímabundin afnot af Miðbakka fyrir parísarhjól.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar bókuðu við afgreiðslu tillögu borgarstjóra, samflokkskonu sinnar. Skúli Helgason og Dóra Björt Guðjónsdóttir sögðu mikilvægt að uppbygging á Miðbakkanum endurspegli þá sérstöðu sem hafi gert Reykjavík að aðlaðandi borg: skapandi borgarlíf, menningu, tónlist, matarmenningu og tengsl við náttúruna.
„Að mati undirritaðra fellur Parísarhjólið ekki vel að þeim anda og dregur fremur upp ímynd af ferðamannavæddri afþreyingu sem gæti staðið hvar sem er. Undirrituð hefðu frekar viljað sjá verkefni sem styrkja sérkenni Reykjavíkur og skapa lifandi vettvang fyrir íbúa jafnt sem gesti eins og til dæmis matarmarkað eða leikrými fyrir börn og ungmenni.“