„Við höfum fyrst og fremst verið að vinna með NATO-herjum og við erum að vinna mikið með okkar bandalagsríkjum,“ segir Stefán Reynisson forstjóri Teledyne Gavia fyrirtækisins.
Stefán sótti í dag ráðstefnu um hergagnaframleiðslu sem haldin var í Ankara, höfuðborg Tyrklands í tengslum við leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem nú stendur yfir.
Hann segir að kafbátar sem fyrirtækið framleiðir hafi um langa hríð verið nýttir af herjum vinveittra ríkja, en á síðustu árum hafi sá hluti framleiðslunnar stóraukist og sé nú allt að þrír fjórðu alls þess sem fyrirtækið gerir.
„Við höfum verið að gera rammasamninga við Svíþjóð, Danmörku, Bretland og fleiri og höfum verið að vinna með þeim bæði í því að nota bátana til að finna sprengjur neðansjávar, eða að fylgjast með neðansjávarviðbúnaði.“
Ástæðan fyrir þessari þróun blasir við; aukin spenna í alþjóðakerfinu og hernaðarátök, meðal annars í Úkraínu, hafa leitt til þess að NATO ríkin, sem og önnur ríki, leggja nú enn meiri áherslu en áður á öryggis- og varnarmál - sem þýðir að starfsemi fyrirtækja á borð við Teledyne Gavia verður fyrir áhrifum af því.
„Okkar tækni er notuð til að finna sokkin skip og flugvélar, og það er auðveldlega hægt að nota sömu tækni til að finna sprengjur og fylgjast með mikilvægum innviðum á sjávarbotni,“ segir Stefán.
„Það er semsagt verið nota þetta til að halda utan um öryggisvæðingu innviða sem skipta okkur máli ... Við héldum lengi vel að allt sem er neðansjávar væri öruggt, en Nordstream-atvikið í Eystrasalti breytti því; eftir það erum við að sjá að það er verið að gera hluti neðansjávar sem við vissum ekki af, og þar kemur okkar tækni að góðum notum, því hún getur fylgst með því sem verið er að gera við sæstrengi og öðrum innviðum sem skipta máli fyrir samfélögin.“
Góðar viðtökur á ráðstefnu NATO
„Eitt af því sem hefur gerst er að ráðamenn hafa áttað sig á því að það er ekki aðeins hægt að reiða sig á stóru hergagnafyrirtækin þegar kemur að því að hraða uppbyggingu,“ segir Stefán.
„Það þarf líka að leita til smærri fyrirtækja eins og okkar, sem eru á almennum markaði að framleiða vörur til borgaralegra nota, en hafa notagildi fyrir hernað. Þannig að við erum að fá góðar viðtökur hérna, því fólk sér að tæknin okkar er nú þegar í notkun hjá ýmsum NATO-ríkjunum og það veitir okkur trúverðugleika.“