Matvælastofnun varar við neyslu á Timur berry kryddi frá Lifa ehf. sem selt er í Kokka á Laugavegi í Reykjavík. Salmonella greindist í kryddinu, að því er fram kemur í tilkynningu Mast.
Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna.