Loftárásir Rússa á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, héldu áfram í nótt. Fréttamenn AFP segja kröftuga sprengingu hafa orðið í borginni áður en loftvarnarflautur ómuðu. Fjórar sprengingar til viðbótar hafi svo fylgt í kjölfarið.
Vitali Klitschko, borgarstjóri Kænugarðs, sagði eld loga í vörugeymslum og atvinnuhúsnæði í tveimur hverfum borgarinnar eftir árásirnar. Í tilkynningu á samfélagsmiðlum sagði hann íbúum borgarinnar að halda sig í loftvarnarbyrgjum.
Rússar hafa gert flugskeytaárásir á borgina á síðustu dögum. 30 voru drepnir í hörðum árásum á mánudag.
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti er á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Ankara, höfuðborg Tyrklands. Hann hefur að undanförnu hvatt bandamenn sína til að efla stuðning við loftvarnarkerfi landsins. Úkraínski flugherinn hefur sagt loftvarnarflaugar skorta. Því ráði herinn verr við eldflaugaárásir Rússa.