Fimm voru drepnir og að minnsta kosti 67 særðust í árás Rússa á verslanamiðstöð í Pavlohrad í Dnipropetrovsk-héraði í Úkraínu í gær. Meðal hinna særðu eru þrír unglingsdrengir.
Kyiv Independent greinir frá.
Árásin átti sér stað um miðjan dag þegar margt fólk var þar nærri. Ekki liggur fyrir hvernig sprengju var beitt í árásinni en að minnsta kosti einn dróni lenti á verslanamiðstöðinni eftir fyrstu sprenginguna.
Pavlohrad er ríflega 75 kílómetra frá víglínunni og var lengi vel talin nokkuð örugg borg en öryggisástandið hefur versnað í borginni á undanförnum mánuðum.