Um hundrað þúsund stuðningsmenn norska landsliðsins eru nú samankomnir í miðborg Oslóar til að fagna sigri sinna manna á Brasilíu í gærkvöld.
Erling Haaland skoraði tvö mörk í leiknum á móti einu marki Brasilíumanna. Fólk fylgdist með leiknum víða um borg og hefur mannfjöldinn nú safnast saman í miðborginni.
Norska ríkisútvarpið greindi frá því að Hákon krónprins hefði verið meðal áhorfenda á torginu fyrir framan norsku konungshöllina þar sem fjöldi fólks og horfði saman á leikinn. Stemmingin á torginu var engri lík og Hákon lét ekki sitt eftir liggja og tók þátt í róðrinum með þeim og fagnaði sínum mönnum vel.
Ingiríður Alexandra prinsessa var hins vegar á leiknum í New Jersey og óskaði sínum mönnum til hamingju í búningsklefa liðsins að leik loknum.
Það gæti þó reynst einhverjum erfitt að komast heim úr miðborg Oslóar í nótt. Tilkynnt hefur verið um mikinn mannfjölda í neðanjarðarkerfum borgarinnar og breytingar hafa verið gerðar á tveimur stætisvagnaleiðum sem gæti heft heimför einhverra stuðningsmanna.
Norska ríkisútvarpið segir að flugfélagið Norse Atlantic ætli að fljúga aukaflugferðir til Miami á Flórída þar sem Noregur mætir næst Englandi eða Mexíkó í 8 liða úrslitum á laugardag. Flugfélagið segir að þessar ferðir verði meira en flugferðir. Þetta séu ferðir fyrir fólk sem ætlar sér að vera á staðnum þegar sögulegur viðburður á sér stað.