Ráðgjafi Hafnarfjarðabæjar velti 40 milljónum
Ráðgjafafyrirtækið Vissa ráðgjöf átti gott rekstrarár á síðasta ári samkvæmt ársreikningi félagsins. Eigandi þess er fyrrverandi þingmaður, en nokkur styr var um störf hans fyrir Hafnarfjarðarbæ.
Ráðgjafafyrirtæki Ágústs Bjarna Garðarssonar, fyrrverandi þingmanns Framsóknarflokksins, átti sterkt rekstrarár á síðasta ári, þegar það velti 40 milljónum króna.
Ágúst Bjarni féll af þingi eftir síðustu þingkosningar en áður var hann sjálfur oddviti Framsóknarflokksins í Hafnarfirði. Við honum tók Valdimar Víðisson, sem lét af embætti bæjarstjóra á dögunum, þrátt fyrir góðan sigur Framsóknarflokksins í bænum tókst honum ekki að mynda meirihluta því Sjálfstæðisflokkurinn og aðrir flokkar sökuðu hann um trúnaðarbrest í meirihlutaviðræðum.
Sjö milljónir fyrir ráðgjöf
Heimildin fjallaði um það fyrir sveitarstjórnarkosningar að félag Ágústs Bjarna, Vissa Ráðgjöf, hefði fengið tæpar 7 milljónir króna fyrir ráðgjafastörf hjá Hafnarfjarðarbæ á síðasta rekstrarári.
Þá kom fram í svari Hafnarfjarðarbæjar við fyrirspurn Heimildarinnar að þáverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar og samflokksmaður Ágústs, Valdimar Víðisson, hefði falið Ágústi Bjarna að vinna verkefni fyrir bæinn. Meðal þeirra var uppbygging á Hraun vestur svæði, Reykjavíkurvegi 60-62, …