Tveir fyrrverandi prófessorar við Háskóla Íslands, þeir Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Ragnar Árnason, hótuðu skaðabótakröfu á Háskóla Íslands og að kvartað yrði til umboðsmanns Alþingis og stjórnar HÍ ef dr. Carl Baudenbacher fengi ekki að halda fyrirlestur í Hátíðarsal HÍ með stuðningi samtakanna Áfram Ísland og Almenna bókafélagsins. Hannes sagði í tölvupósti til skrifstofustjóra rektors HÍ að Háskólinn kynni að vera skaðabótaskyldur fyrir ekki „litlar fjárhæðir“ vegna málsins.
Prófessorar hótuðu Háskóla Íslands hárri skaðabótakröfu