Jonas Asanavicius, 29 ára litháískur ríkisborgari, var í Héraðsdómi Reykjavíkur sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnabrot hér á landi. Dómurinn var kveðinn upp þann 10. ágúst.Jonasi var gefið að sök að hafa mánudaginn 8. júní síðastliðinn tekið á móti og haft í vörslu sinni tæplega 1,3 kg af kókaíni með styrkleika 80-81%. Lögreglan handtók Jonas þennan dag en efnin komu í tveimur póstsendingum á pósthúsið við Síðumúla, Reykjavík, þangað sem hann sótti þau.
Pottamálið: Jonas játaði og fékk vægan dóm