Stefán Jakobsson, betur þekktur sem Stebbi Jak, og Andri Freyr komu Ladda skemmtilega á óvart í Morgunverkunum á Rás 2 á föstudagsmorgun og fengu hann til að flytja „Stebba Stuðara“ í beinni.
Laddi var mættur í þáttinn til að segja frá væntanlegum tónleikum og vissi ekki að Stebbi hefði tekið gítarinn með sér.
Lagið kom út á plötunni Deió árið 1981 og hafði Laddi ekki sungið það opinberlega frá því það var tekið upp fyrir 45 árum.
Stebbi tók að sér hlutverk Röggu Gísla í flutningnum, Andri Freyr var sögumaðurinn og Laddi var að sjálfsögðu Laddi.
Stebbi Jak heldur útgáfutónleika í Bæjarbíói 4. september vegna annarrar sólóplötu sinnar, Líttu í kringum þig. Spurningin er hvort Laddi verði fenginn til að endurtaka leikinn þar.