Píratar töpuðu 12 milljónum
Píratar skiluðu ársreikningi fyrir árið 2024 rúmu hálfu ári of seint. Flokkurinn fær rúmar 17 milljónir frá ríkissjóði í ár. Allir flokkar töpuðu fé á óvænta kosningaárinu 2024 nema Framsókn og Sósíalistar.
Píratar töpuðu 11,9 milljónum króna kosningaárið 2024. Flokkurinn fékk enga veglega styrki frá einstaklingum eða lögaðilum á árinu.
Þetta kemur fram í ársreikningi Pírata vegna ársins 2024 sem var samþykktur af Ríkisendurskoðun nýverið.
Rekstartekjur Pírata voru 79,9 milljónir króna. Eigið fé í árslok 2024 var jákvætt um 2 milljónir kr. en var jákvætt 13,8 millj. kr. árið á undan. Einn starfsmaður var í fullu starfi og námu laun og launatengd gjöld flokksins 19,4 milljónum króna. Félagsgjöld einstaklinga námu tæpum 1,5 milljónum.
Píratar voru síðasti stjórnmálaflokkurinn á landsvísu til að skila ársreikningi vegna 2024 en honum var skilað 12. maí síðastliðinn til Ríkisendurskoðunar. Stjórnmálasamtök skulu eigi síðar en 31. október ár hvert skila inn ársreikningi en Flokkur Fólksins og Viðreisn voru einu flokkarnir á landsvísu sem skiluðu tímanlega. Píratar skiluðu þannig rúmlega sex mánuðum of seint.
Sé litið á ársreikninga allra stjórnmálaflokka töpuðu þeir allir á rekstri sínum árið 2024 …