Skellt hefur verið í lás í ráðhúsinu á Hvammstanga eftir að mikil mygla fannst í húsnæðinu. Einhverjir starfsmenn voru farnir að finna fyrir einkennum segir sveitarstjóri. Tekin voru bæði stroksýni og efnissýni á nokkrum stöðum á öllum hæðum hússins. Niðurstöður þeirra leiða í ljós að ástand hússins er mun verra en talið var.
„Staðan er sú að við fengum sérfræðinga til þess að gera tvenns konar mælingar þegar upp kom grunur um að loftgæði væru ekki eins og best verður á kosið. Og því miður leiddi sú sýnataka í ljós að það er einnig grunur um myglu á efri hæðinni. Þannig að staðan er bara langt frá því að vera góð,“ segir Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri í Húnaþingi vestra.
Smádýraskítur og egg í sýnunum
Í sýnum úr gólfdúk og veggjum fannst mikið af smádýrum, smádýraleifum, smádýraskít og eggjum. Mygla fannst í öllum átta sýnunum sem tekin voru. Í minnisblaði frá verkfræðistofunni Ferli sem sá um sýnatökuna segir:
„ Mjög smá, aflöng, ljós gró fundust á botni, sum stök og önnur í keðjum, hypha (sveppaþræðir) dökkir og ljósir fundust einnig í nokkru magni. Nokkuð mikið magn smádýra eggja fundust ásamt smárdýraskít. Lifandi, glært smádýr fannst skríðandi um dúkinn.“
Búið er að loka ráðhúsinu og verður starfsemi þess skert að minnsta kosti þar til á fimmtudag þegar opnað verður í félagsheimilinu á Hvammstanga.
Hafa áhyggjur af dýrum endurbótum
Beðið er eftir tillögum að úrbótum í húsinu og síðan verður boðað til íbúafundar. Að sögn Unnar gætu framkvæmdirnar orðið kostnaðarsamar og sett aðrar framkvæmdir í sveitarfélaginu í uppnám.
Starfsfólk fékk ekki að taka neinn búnað með sér úr ráðhúsinu í nýja rýmið. Beðið er eftir að tölvur og önnur gögn verði þrifin áður en hægt verður að flytja þau yfir. Einhverjir starfsmenn voru farnir að finna fyrir einkennum en 12 manns störfuðu í ráðhúsinu.
„Já, því miður þá voru einhverjir farnir að finna fyrir einkennum. Það er alveg sama hvort það sé einn eða tíu, við tökum enga sénsa með heilsu starfsfólks eða þeirra sem koma í húsið. Það var tekin ákvörðun tiltölulega fljótt að flytja starfsemina annað.“