Cilia Flores, fyrrverandi forsetafrú Venesúela, hefur óskað eftir því að vera færð úr fangelsi í stofufangelsi vegna slæmrar heilsu.
Flores og Nicolas Maduro, eiginmaður hennar og fyrrverandi forseti Venesúela, voru handtekin í hernaðaraðgerð Bandaríkjahers í byrjun árs og færð í varðhald í Bandaríkjunum þar sem þau hafa verið í fangelsi síðan.
Flores er 69 ára. Lögmaður hennar segir hana hafa verið við góða heilsu áður en hún var handtekin en hafa hrakað mjög í fangelsi því hún hafi ekki átt kost á fullnægjandi læknismeðferð. Því sé farið fram á að hún verði færð í stofufangelsi og verði þar undir sólarhringseftirliti og fái rafrænt ökklaband.
Hjónin bíða dóms. Þau eru ákærð fyrir að aðstoða við smygl á mörgum tonnum af kókaíni til Bandaríkjanna. Bæði neita. Maduro heldur því fram að hann sé stríðsfangi Bandaríkjanna.