„Ég hef verið nú í 25 mínútur í röð. Það er komin bílalest lengst upp á heiði,“ segir Árni Gunnarsson í stuttu samtali við Vísi. Hann telur að mörg þúsund manns verði nú fyrir ófyrirsjáanlegum töfum á ferðum sínum.
Spurður hvort þetta séu ekki mestan part ferðamenn telur Árni það af og frá.
„Milli Selfoss og Reykjavíkur? Nei, þetta eru flutningabílar og fólk á ferðinni. Þetta er þjóðvegur 1. Það er engin önnur leið nema þá um Þingvelli. Ég er sem betur fer ekki á flutningabíl á leið upp í námur. Ég kæmist ekki margar ferðir,“ segir Árni.
Fram kemur á vef Vegagerðarinnar að á milli klukkan 9 og 20 í dag verði unnið að vegaframkvæmdum á Suðurlandsvegi við Hólmsá. Umferðastýring verði á svæðinu og megi búast við talsverðum umferðartöfum meðan á vinnu stendur. Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.
Árni er ósáttur og telur þetta vanvirðingu við vegfarendur, að ekki sé hægt að vinna verkið í næturvinnu og á auðveldari hátt.
Veistu meira um málið eða áttu myndir? Sendu okkur á ritstjorn@visir.is.
Veistu meira um málið eða áttu myndir? Sendu okkur á ritstjorn@visir.is.