„Hann er maður textans. Hann er maður orðsins,“ segir Jónatan Garðarsson fjölmiðlamaður, um Magnús Þór Jónsson, Megas.
Tónlistarmaðurinn, rithöfundurinn og myndlistarmaðurinn Megas er látinn, 81 árs að aldri.
Jónatan er sérfróður um íslenska tónlistarsögu og fór yfir arfleifð Megasar í stuttu máli í hádegisfréttum.
„Það sem Megas kemur með er nýr tónn í textagerð. Hann er algjörlega berskjaldaður, hann talar um fólk og málefni á mjög opinskáan hátt,“ segir Jónatan.
Megas dró upp nýja mynd af gömlu þjóðhetjunum. „Lýsir þeim eins og venjulegum manneskjum, fer jafnvel í það að segja frá göllum þeirra frekar en kostum. Svo er hann maður orðsins, hann er orðheppinn, hann var mjög vel að sér í íslensku en hann notaði líka slanguryrði á mjög snjallan og skemmtilegan hátt,“ lýsir Jónatan.
Megas skilur eftir sig fjöldann allan af lögum, yfir 700 talsins, auk fjölmargra sem hafa aldrei litið dagsins ljós. „Ég veit að hann átti margar möppur með tónlist sem á eftir að gefa út. Þannig hann skilur eftir sig alveg gríðarlega mikið magn af góðri tónlist og textum. Og svo náttúrulega þessi sterku áhrif,“ segir Jónatan.
Megas var fyrst og fremst maður orðsins. „En hann var flinkur að semja lög og samdi mörg alveg snilldargóð og falleg lög. En hann fór líka alltaf eftir textanum sjálfum, textinn og hrynjandin réðu hvernig lagið raðaðist saman. Það má segja að textinn er hans meginhluti af þessari sögu en það er aldrei hægt að ganga fram hjá tónlistinni. Eins og hann sagði sjálfur: „Ég er ekki ljóðskáld, ég er lagasmiður.““
Jónatan segir Megas hafa rutt veginn og gefið öðrum leyfi til að yrkja öðruvísi en áður var. „Og það hafa margir farið í þessi sömu fótspor.“
Hér má lesa yfirlit Jónatans Garðarssonar yfir feril Megasar frá árinu 2002.