Nokkur ökutæki, sem virðast annaðhvort vera númeralaus eða á einhvern annan hátt ekki í aksturshæfu ástandi, hafa staðið um nokkurt skeið á bílastæðum við Eiðistorg á Seltjarnarnesi og vakið athygli íbúa og vegfarenda.
Sérstaka athygli vekur fólksbíll á bílastæði við Hagkaup sem stendur á hellusteinum eftir að bæði afturhjól voru fjarlægð. Bíllinn er þó skráður á númerum. Að mati sumra íbúa er óheppilegt að slíkt ökutæki standi á fjölförnu bílastæði enda geti það skapað hættu fyrir vegfarendur.
Á svæðinu má jafnframt sjá nokkur ökutæki án skráningarnúmera, lausleg athugun benti til þess að þar væru hið minnsta fjögur slík ökutæki. Ekki liggur fyrir hversu lengi þau hafa staðið þar né hvort gripið hafi verið til aðgerða vegna þeirra.
Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaupa, segir fyrirtækið þekkja vel til málsins enda séu Hagar, móðurfélag Hagkaupa, eigendur hluta bílastæðanna við Eiðistorg, þar á meðal þeirra þar sem umrædd ökutæki standa.
„Við skiljum ekki hvernig fólki dettur í hug að þessi bílastæði séu geymslusvæði fyrir bíla,“ segir Sigurður. Hann segir Hagkaup fylgjast reglulega með ástandi bílastæðanna og láti fjarlægja númeralaus ökutæki af svæðinu með reglubundnum hætti.
Að sögn Sigurðar hefur bíllinn sem stendur á hellusteinum verið á svæðinu í tvær til þrjár vikur.
„Þegar við sáum hann fyrst héldum við að hann hefði bilað og væri í einhverjum neyðarviðgerðum.“ Síðar hafi komið í ljós að bíllinn sé í eigu fyrirtækis sem var úrskurðað gjaldþrota. Að sögn Sigurðar er unnið að lausn málsins í samráði við skiptastjóra.
Bærinn bendir á eigendur
Haft var samband við Seltjarnarnesbæ sem bendir á að umrætt bílastæði sé ekki í eigu sveitarfélagsins heldur Haga en að bærinn sé í góðu sambandi við lóðareigandann. Í skriflegu svari frá bænum er nefnt að það sé sannarlega hvimleitt með þessa númerslausu bíla sem dúkka upp hér og þar innan bæjarfélagsins og eru engum til sóma. „Það virðist hins vegar oft vera þannig að þegar á að fjarlægja bíl af einum stað að eigandinn færi hann þá bara eitthvað annað.“
Ekki fengust upplýsingar frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna málsins.
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.