Spænska veðurstofan, AEMET, greinir frá því að brunahættan muni aukast verulega. Íbúar eru beðnir um að sýna aðgát.
„Spánverjar hafa tvo daga til að ná tökum á skógareldunum sem hafa þvingað tugi þúsunda á flótta, áður en hitastigið hækkar á ný,“ sagði innanríkisráðherrann Fernando Grande-Marlaska á blaðamannafundi í dag.
Nýja hitabylgjan nálgast Íberíuskagann frá suðri, þaðan sem hún kemur frá Sahara-eyðimörkinni. Búist er við 45 til 47 stiga hita á í vikunni og hitastig gæti enn verið vel yfir tuttugu stigum á nóttunni. Þetta gæti verið ein sterkasta hitabylgja sem skekið hefur Spán á síðustu áratugum, samkvæmt Severe Weather Europe.
Alls hafa 330 þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna gróðurelda sem geisað hafa í vikunni í Frakklandi og á Spáni.