Fólkið er sakað um að hafa þvættað 150 milljónir hrinja, eða um 3,4 milljónir dala, gegnum banka í ríkiseigu. Peningana ætluðu þau að nota til að greiða tryggingu fyrir Herman Halushchenko, fyrrverandi orkumálaráðherra, sem er í gæsluvarðhaldi eftir að hann var í fyrr ákærður fyrir umfangsmikla spillingu og fjársvik.
Það mál leiddi til brottreksturs tveggja ráðherra í ríkisstjórn Selenskís.
Sjá einnig: Lætur ráðherra fjúka vegna umfangsmikils spillingarmáls
Starfsmenn tveggja andspillingarrannsóknastofnanna Úkraínu sem kallast NABU og SAPO, gerðu í dag húsleit hjá þremenningunum.
Skömmu síðar birtist stutt yfirlýsing á vef forsetaembættis Úkraínu um að Iryna Mudra, áðurnefndur aðstoðarskrifstofustjóri, hefði verið rekin úr starfi sínu. Hún hefur meðal annars verið með umbætur í dómskerfi Úkraínu á sínu borði.
Að öðru leyti hefur forsetinn ekki tjáð sig um málið að svo stöddu.
Þetta nýja spillingarmál fylgir á hæla þess að Mykhailo Fedóróv, fyrrverandi varnarmálaráðherra Úkraínu, gagnrýndi forsetann harðlega og kallaði eftir forsetakosningum.
Sjá einnig: Fedóróv kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu
Kosningar eru bannaðar á meðan herlög eru í gildi, samkvæmt stjórnarskrá Úkraínu. Þá yrði erfitt að framkvæma kosningar þar sem stór hluti þjóðarinnar hefur flúið land, annar hluti býr á hernumdum svæðum og fjölmargir hermenn ættu erfitt með að greiða atkvæði, svo eitthvað sé nefnt.