Samkomulag hefur náðst um myndun meirihluta í sveitarstjórn Hörgársveitar. G-listi Grósku og H-listi Hörgársveitar mynda meirihlutann. Samanlagt fengu þeir 65,5 prósent í kosningunum og þrjár af fimm sveitarstjórnarmönnum.
Sunna María Jónasdóttir af G-lista verður oddviti og Bjarki Brynjólfsson frá H-lista varaoddviti. Róbert Fanndal Jósavinsson frá G-lista verður formaður framkvæmda- og rekstrarnefndar.
Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri gegnir því starfi áfram og hefur skrifað undir samning til starfa á þessu kjörtímabili.