Það var augljóst að margir höfðu beðið óþreyjufullir eftir sumarveðrinu og nutu sín vel, víða um borgina í dag.
Í Elliðaárdalnum voru leikskólabörn að skemmta sér og í Nauthólsvíkinni fögnuðu ungmenni að vorprófum væri lokið.
Sundhöll Reykjavíkur opnaði nýtt og endurbætt sólbaðssvæði.