Karlmaður sem hlaut alvarleg brunasár í kjölfar aðgerðar lögreglu í gamla kirkjugarðinum á Reykjanesi í maímánuði neitar því að hafa kveikt í sér. Hann segir eld hafa kviknað í sér eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu.
Þetta segir maðurinn, Mikkael Ingiberg Gunnlaugsson, í viðtali á RÚV.
Í viðtalinu lýsir Mikkael því að hann hafi verið staddur í kirkjugarðinum til að fara með bæn fyrir ástvini sína þegar hann sá lögreglumenn nálgast sig. Hann kveðst hafa orðið skelkaður og beðið lögreglumennina að halda sig fjarri.
Mikkael var með kveikjara og bensínbrúsa á sér sem hann segir hafa verið ætlaða rafskútunni sinni. Hann kveðst hafa hellt bensínvökvanum yfir sig í viðleitni til að fæla lögreglumennina frá.
„Það hafði þveröfug áhrif. Svo tekur lögreglumaður eða kona upp taser og skýtur mig. Ég finn hita koma upp bakið og svo er kviknað í mér,“ segir hann.
Gekkst undir aðgerð í Noregi
Mikkael hlaut annarrar og þriðju gráðu bruna á um helmingi líkamans. Hann var fluttur til Noregs með sjúkraflugi þar sem hann gekkst undir aðgerð.
Lögreglan á Suðurnesjum hefur sagt frá upphafi máls að það hafi verið Mikkael sem bar eld að sér með kveikjaranum sem hann hafði meðferðis.
Þegar greint var frá málinu sagði lögregla að tilkynning hefði borist um mann í ójafnvægi í kirkjugarðinum. Í frétt RÚV segir að Mikkael hafi glímt við andleg veikindi.
Mikkael segist vonast til þess að lögreglumenn fái frekari þjálfun í notkun rafbyssa.