Ný stjórnsýsluframkvæmd Náttúruverndarstofnunar vakti hörð viðbrögð hjá ljósmyndurum landsins sem töldu hana skerða atvinnufrelsi sitt. Framkvæmdin tók gildi 17. maí og átti að takmarka drónaflug á 26 friðlýstum svæðum víðs vegar um landið fyrir alla nema þá sem væru að starfa við kvikmynda- og auglýsingagerð.
Talsmaður Ljósmyndarafélags Íslands lýsti yfir þungum áhyggjum af stöðunni í samtali við fréttastofu. Nú hefur Náttúruverndarstofnun brugðist við og leiðrétt orðalagið í stjórnsýsluframkvæmdinni. Nú veitir stofnunin ekki aðeins leyfi fyrir kvikmynda- og auglýsingagerð heldur einnig: vegna rannsókna, vöktunar, eftirlits, framkvæmda, kvikmyndatökuverkefna (s.s. kvikmyndagerð, auglýsingar, sjónvarpsþættir og í fréttaskyni), atvinnuljósmyndunar og leyfisskyldra viðburða.
Markmiðið að draga úr drónaflugi
Í tilkynningu frá stofnuninni kemur fram að tilgangur stjórnsýsluframkvæmdarinnar hafi verið að draga úr drónaflugi á umræddum svæðum sem hefur aukist mikið.
„ Rétt er að taka fram að meginmarkmiðið með breyttri framkvæmd var að draga úr umferð dróna í afþreyingarskyni sem hefur aukist undanfarin misseri. Stofnunin áréttar að sem fyrr geta ljósmyndarar sótt um leyfi til notkunar dróna á tilteknum friðlýstum svæðum að uppfylltum skilyrðum.“
Þá kemur einnig fram að þeir muni funda með Félagi atvinnuljósmyndara á næstu dögum.