Harry Bretaprins og Meghan hertogaynja eiginkona hans hyggja á flutninga til Bretlands frá Bandaríkjunum ásamt börnum sínum tveimur. Fregnir af þessu koma í kjölfar umfjöllunar New York Post um að hjónin hafi gert mislukkaðar tilraunir til að auka pólitísk áhrif sín vestra og raunar að komast til metorða því Meghan reyndi að fá sæti í öldungadeild Bandaríkjaþings og hjónin fóru fram á fund með Joe Biden í hans forsetatíð og vildu fá við það tækifæri sams konar aðbúnað og erlendir þjóðleitogar fá í opinberum heimsóknum.
Mislukkuð tilraun Meghan og Harry til að komast til pólitískra metorða