Minnst var í gær, 6. júlí, að rétt 80 ár voru þá liðin frá því Bretar afhentu Íslendingum Reykjavíkurflugvöll til eignar og afnota. Völlinn hafði heimsveldið látið gera í síðari heimsstyrjöld en að henni afstaðinni breyttust notin.
„Á okkar ábyrgð er að tryggja á hverjum degi að flugvöllurinn sé opinn og öruggur og geti gegnt sínu hlutverki sem lykilstoð í samgöngukerfi landsins,“ sagði Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia innanlandsflugvalla, í ávarpi.
Um 500 manns starfa á flugvallarsvæðinu og um 1.000 farþegar fara þar um daglega. Þá fóru á síðasta ári um 6.000 manns um Reykjavíkurflugvöll í millilandaflugi, ýmist í leiguflugi eða til Grænlands. Þá koma sjúkraflugvélar utan af landi til Reykjavíkur allt að 1.400 sinnum á ári.