Minningar- og þakkarstund verður haldin í Áskirkju í Reykjavík á morgun vegna Hönnu Jane Large sem lést í bílslysinu við Krýsuvíkurveg 31. ágúst.
Ása Björk Ólafsdóttir prestur sér um stundina sem fer fram á ensku.
Hanna Jane var ein þriggja sem létust í bílslysinu. Hún var skiptinemi á Íslandi. Móðir hennar sagði í athugasemd við færslu Höllu Tómasdóttur forseta um slysið að lífsgleðin hefði skinið af dóttur sinni síðast þegar þær ræddu saman. Hún sagði að síðustu dagarnir hefðu verið mestu hamingjudagar lífs hennar.