Mennirnir tveir sem sitja í gæsluvarðhaldi á Spáni og í Póllandi í tengslum við andlát manns í Kársnesi fyrr í mánuðinum voru á Íslandi þegar manninum var ráðinn bani. Einn situr í gæsluvarðhaldi hér á Íslandi. Gæsluvarðhald yfir honum rennur út á mánudaginn. Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar.
Ráðist var á mann á fimmtugsaldri á heimili hans á Kársnesi í Kópavogi um miðjan dag 9. ágúst. Hann lést af sárum sínum eftir árásina.
Alls voru ellefu handteknir í tengslum við málið hér á landi og tveir erlendis. Fimm voru hnepptir í gæsluvarðhald, þar á meðal mennirnir tveir erlendis. Síðan þá hefur tveimur hér á landi verið sleppt. Ævar Pálmi segist ekki getað tjáð sig um hvort maðurinn sem sitji í gæsluvarðhaldi hér heima sé talinn hafa ráðið manninum bana. Það segi þó sitt að hann sé enn í varðhaldi.
Mennirnir tveir sem eru í haldi í Póllandi og á Spáni hafi verið á landinu þegar árásin var gerð en hafi yfirgefið landið skömmu eftir andlátið. Lögreglan hér á landi sé í miklum samskiptum við yfirvöld erlendis.
Heimildir fréttastofu herma að lögregla telji málið tengjast skipulagðri brotastarfsemi og Europol hefur aðstoðað við rannsóknina, sem er umfangsmikil og flókin, en lögregla telur sig þó hafa ágætis mynd af atburðarásinni.