15 eru látnir og níu er saknað eftir mikil flóð og skriður vegna óveðurs og úrhellis í Kína. Ríkisfjölmiðlar í Kína segja að nokkur hundruð séu slösuð og tugir þúsunda hafi þurft að yfirgefa heimili sín vegna óveðursins.
Hubei- og Guangxi-héruð urðu verst úti í óveðrinu. Stifla brast í Nanning, höfuðborg Guangxi-héraðs og mikil skriða féll í Gansu-héraði.
33 grófust undir skriðunni og búið er að bjarga um helmingi þeirra en björgunaraðgerðir standa enn yfir til að bjarga þeim sem enn eru fastir.